Ársskýrslan á netið
Öflug miðlun lykilupplýsingar úr ársskýrslu félagsins.
Öflug miðlun lykilupplýsingar úr ársskýrslu félagsins.
Með ársskýrsluvef Stefnu getur þú gefið ársskýrsluna út á rafrænu sniði og þannig sparað prentkostnað við hefðbundna útgáfu.
Á netinu má jafnframt mæla lesturinn og lagfæra gögnin með auðveldum hætti ef eitthvað krefst leiðréttingar eða viðbóta.
Framsækin fyrirtæki gefa ársskýrsluna út á vefsniði, stundum samhliða hefðbundinni pappírsútgáfu. Fjárfestingin nýtist ár eftir ár með uppfærðum gögnum.
Með tilbúinni lausn sparast tími svo koma má ársskýrsluvefnum hratt í loftið.
Með rafrænni útgáfu getur þú kynnt ársskýrsluna á heimasíðu fyrirtækisins/stofnunarinnar, með tölvupósti til viðeigandi hagsmunaaðila og boðið upp á samanburð á milli ára þegar fram í sækir.
Það tekur frá 4 upp í 14 daga að setja upp og gefa út ársskýrslu rafrænt.
Dæmi: Ársskýrsla Norðurorku, Ársskýrsla Stapa Lífeyrissjóðs og Ársrit Skógræktarinnar.
Á ársskýrsluvefnum er vísað í ársreikninginn á PDF sniði, hann er því ekki allur felldur inn.
Hægt er að draga fram lykiltölurnar með myndrænum hætti, sé þess óskað. Þannig má stýra því hvað lesendur skýrslunnar eru helst að horfa á, hvort sem það eru tölur úr ársreikningi eða önnur tölfræði úr rekstrinum.
Komdu í kaffi til okkar og við förum yfir þín mál og gerum tilboð sem hentar þinni starfssemi.
s. 464 8700