Kerfið okkar er þróað með notendur í huga. Öflugt kerfi á íslensku sem er einfalt í notkun og viðskiptavinir okkar mæla með.
Við styðjum þig í að koma þinni vefverslun í loftið. Nýttu þér áralanga reynslu okkar í uppsetningu heimasíðna og netverslana fyrir fyrirtæki og félagasamtök. Verð frá 390.000 kr. (án vsk).
Setja má upp samanburð á vörum á einfaldan hátt.
Eiginleikar eru stofnaðir í netversluninni, til dæmis stærð, lengd, innihaldsefni eða hvað það sem á að vera hægt að bera saman (og filtera eftir) og svo er inni í hverjum vöruflokki valið hvaða eiginleikar eiga við vörurnar í flokkinum.
Fljótlegt er að tengja eiginleikana inn í vörurnar og þannig bjóða notendum sem skoða flokkinn að bera saman vörur og filtera flokkinn og þannig finna þær vörur sem henta.
Þitt logo, þínir litir og öll sú aðlögun að þínum óskum sem þörf er á.
Við setjum vefverslunina upp í okkar sniðmáti og framkvæmum svo þá aðlögun sem óskað er eftir. Ritstjóri getur jafnframt sett inn allt efnið sjálf(ur), það á við um öll lýsigögn á vörum, bannera á forsíðu og efni til leitarvélabestunar (SEO).
Mjög misjafnt er hversu mikla sérhönnun er farið í, það fer allt eftir óskum hvers og eins.
Það er bæði fljótlegt og einfalt að tengja vörur saman svo kynna megi áhugaverðar vörur fyrir þeim sem eru að skoða netverslunina.
Með þessum hætti er hægt að tengja aukahluti við vörurnar og vera þannig með virka upp- og kröss-sölu fyrir vörurnar sem notandi upplifir sem betri þjónustu.
Hægt er að stilla netverslunina þannig að sjálfgefið birtist tilteknar vörur í sama flokki sem tengdar vörur en að hægt sé að velja aðrar vörur ef það á við.
Vefumsjónarkerfið og netverslunarkerfið styður við ítrustu kröfur um leitarvélabestun (SEO). Með þessum hætti getur ritstjóri sett inn lýsigögn fyrir vefinn í heild, en einnig inn á tilteknar vörur.
Leitarvélabestun snýst einnig að stórum hluta um hvernig veftré og lýsigögn þess eru byggð upp, hvaða orð eru notuð jafnt í fyrirsögnum sem lýsingum.
Við veitum gjarnan ráð um hvernig ná megi árangri með réttri uppsetningu fyrir góða útkomu í Google.
Með uppsetningu eiginleika má útbúa afbrigði. Þannig getur eiginleiki verið „stærð“ eða „gígabæt“ og hægt að útbúa afbrigði af vörunni í mismunandi stærðum, með mismunandi mörg gígabæt og svo framvegis.
Afbrigði af vöru er hægt að tengja við önnur vörunúmer, breyta verði, setja inn ólíkar myndir út frá afbrigði, stilla mismunandi eiginleika á afbrigði o.s.frv.
Hér er því talsverður sveigjanleiki og tengjast afbrigði síðan einnig inn í filtera í vöruflokki, ef það á við.
Netverslanir okkar hafa þegar verið tengdar við fjölmargar greiðslugáttir, þar má nefna hinar hefðbundu greiðslusíður kortafyrirtækjanna á borð við Borgun, Korta og Valitor, einnig Pei, Kass, Netgíró og PayPal.
Engar takmarkanir eru fyrir því hvaða greiðsluleiðir má tengja, þar sem einfalt er að bæta við greiðsluleiðum eftir þörfum.
Eins og gefur að skilja þarf viðkomandi greiðsluleið að uppfylla ströng skilyrði um öryggi í viðskiptum.
Skýrslur í netversluninni gefa þér færi á að fylgjast með veltunni og skoða út frá tímabili, vörum og pöntunum viðskiptavina.
Viðskiptavinurinn getur einnig séð yfirlit sinna pantana á sínu svæði, vistað körfur og stillt vöktun á vörum.
Í kaupferlinu er viðskiptavinur hvattur til að velja sér lykilorð og gerast þannig skráður viðskiptavinur, sem flýtir fyrir næstu kaupum.
Hægt er að setja vörurnar upp á fleiri en einu tungumáli sé þess óskað.
Það er fljótlegt að fylla út allar viðeigandi upplýsingar á mörgum tungumálum og eru þeir reitir sem má þýða merktir sérstaklega með fánum.
Þannig getur þú sett upp netverslun sem er ekki aðeins á innlendum markaði eða takmörkuð við enskumælandi markaði með einu og sama viðmótinu og vörugrunninum.
Við höfum langa reynslu af tengingu netverslana beint inn í DK, Navision, AX og fleiri bókhalds- og birgðakerfi. Algengast er að lagerstaða og verðupplýsingar séu sóttar, en í mörgum tilvikum er gengið mun lengra með því að keyra pantanir beint inn í bókhaldskerfið og bjóða viðskiptavinum að sjá hreyfingarlista inni á sínu svæði.
Hægt er að byrja smátt í slíkum tengingum og bæta svo við upplýsingum, en í flestum tilvikum þarf að hreinsa nokkuð til í lýsigögnum birgðakerfisins svo þær komi vel út í vefversluninni (til dæmis titlar, lýsingar o.þ.h.).
Hægt er að setja upp afslætti á einstakar vörur og merkjast þær þá sem tilboðsvörur.
Einnig er hægt að virkja útsölu/afslátt á tilteknum vörum eða flokkum og stilla gildistíma.
Með afsláttarkóða er hægt að bjóða viðskiptavinum að fá afslátt af vörum eða vöruflokkum, ýmist sem prósentu eða upphæð (krónutölu) og tengja við sendingarkostnað ef við á. Slíkir kóðar nýtast vel til að rekja árangur markaðsátaks t.d. á samfélagsmiðlum eða í fréttabréfi.
Hægt er að bjóða viðskiptavinum að skoða netverslunina með mismunandi gengi, en þá er stilltur einn gjaldmiðill sem allir aðrir eru reiknaðir út frá.
Viðskiptin eiga sér því alltaf stað í þessum aðalgjaldmiðli, en hægt er að umreikna á aðra gjaldmiðla í viðmóti notenda út frá breytilegu gengi (sem uppfærist sjálfkrafa) sé þess óskað.
Þetta bætir þjónustu við erlenda viðskiptavini sem geta með þessum hætti umreiknað íslenskrar krónur í þá gjaldmiðla sem í boði eru.
Með snertiskjá eigum við auðvitað við bæði snjallsíma og spjaldtölvur, sem í auknum mæli eru notaðar til að skoða vörur og framkvæma kaup.
Við höfum þróað viðmótið þannig að það er einfalt og þægilegt að skoða og kaupa með þeim tækjum.
Þegar vefsíður eru skalaðar niður í smærri skjái skiptir einnig miklu máli að allt myndefni sé á viðeigandi sniði, svo vefurinn sé snöggur að birtast á skjánum.
Komdu í kaffi til okkar og við förum yfir þín mál og gerum tilboð sem hentar þinni starfssemi.
s. 464 8700