Hilton Reykjavík

03. mars 2015
Stefna Ehf
Hilton Reykjavík fékk extreme makeover hjá okkur í Stefnu í febrúar. Og útkoman er að fá góða dóma.
Hilton Reykjavík fékk extreme makeover hjá okkur í Stefnu í febrúar. Og útkoman er að fá góða dóma.

Hótelið Hilton Reykjavík Nordica er einkar glæsilegt hótel, staðsett á besta stað í borginni og státar bæði af heilsuræktinni Hilton Reykjavík Spa og hinum vinsæla veitingastað Vox.

Vefsvæðið þeirra - hiltonreykjavik.com - var tekið í endurhönnun hjá okkur í Stefnu á dögunum og sett upp í nýjustu útgáfunni af vefumsjónarkerfinu okkar, Moya. Vefurinn er með lóðrétta aðalvalmynd og sker sig því nokkuð frá flestum þeim vefjum sem finna má á vefnum. Viðbrögðin við vefnum hafa verið mjög góð og við erum afar sátt við þessa nýjustu afurð úr Stefnu-smiðjunni. 

Kíkið á vefinn á slóðinni hiltonreykjavik.com

Við óskum Hilton innilega til hamingju með nýja vefinn. 

Hilton Reykjavík vefurinn