Bílaumboðið Hekla tók nýlega vefinn sinn Hekla.is og vef notaðra bíla í gegn. Vefhönnun hans var samstarfsverkefni Stefnu og Arnar Smára, sjálfstætt starfandi hönnuðar, en forritarar okkar höfðu umsjón með viðmótsforritun og uppsetningu í Moya vefumsjónarkerfið.
Við hjá HEKLU erum afar ánægð með nýja vefinn okkar sem hið frábæra starfsfólk hjá Stefnu setti upp fyrir okkur. Vefurinn er einfaldur í notkun, þeim atriðum sem við lögðum áherslu á gerð góð skil, hann lítur mjög vel út og kemur alveg einstaklega vel út í snjallsímum og spjaldtölvum. Við höfum fengið mjög góð viðbrögð og ekki skemmir hve góð þjónustan hefur verið í kringum vefþróunina.
Halldóra Anna Hagalín hjá Heklu
Við óskum starfsfólki Heklu til hamingju með nýja vefinn og þökkum ekki síður fyrir hlý orð í okkar garð. Viltu lesa hvað hinir viðskiptavinir segja um okkur? Okkar markmið er að standa undir þeim fögru orðum sem viðskiptavinir nota um vörurnar okkar, þjónustu, viðmót okkar og vinnubrögð.
Komdu í kaffi til okkar og við förum yfir þín mál og gerum tilboð sem hentar þinni starfssemi.
s. 464 8700