Nýr vefur Mazda á Íslandi

21. mars 2016
Stefna Ehf
Zoom zoom! Nýr vefur fyrir eina glæsilegustu bílategund heims er komin í loftið.
Zoom zoom! Nýr vefur fyrir eina glæsilegustu bílategund heims er komin í loftið.

Umboðsaðili Mazda á Íslandi, Brimborg, hefur opnað nýjan vef Mazda.

Nýi vefurinn er unnin sérstaklega fyrir íslenskan markað, í takt við vefi Mazda í Danmörku og víðar. Vefurinn var hannaður og forritaður af okkur í Stefnu í nánu samráði við starfsfólk Brimborgar.

Í hönnun var haft að leiðarljósi að hafa skýrar og aðgengilegar upplýsingar og endurspegla glæsileika Mazda bíla, sem ítrekað hafa hlotið verðlaun fyrir hönnun, nú síðast fyrir Mazda CX-3 og Mazda MX-5.

Við óskum vinum okkar hjá Brimborg og öllum bílaáhugamönnum til hamingju með nýjan vef Mazda á Íslandi!