HSN opnar vef

23. júní 2015
Stefna Ehf
Heilbrigðisstofnun Norðurlands er kominn með stórglæsilegan vef!
Heilbrigðisstofnun Norðurlands er kominn með stórglæsilegan vef!

Heilbrigðisstofnun Norðurlands tók til starfa 1. október 2014 við sameiningu heilbrigðisstofnana á Norðurlandi.

Undanfarna mánuði höfum við unnið að uppsetningu á nýjum vef fyrir sameinaðar heilbrigðisstofnanir frá Blönduósi í vestri að Þórshöfn í austri, en á svæðinu búa 35.000 manns og eru starfsmenn HSN um 500 talsins.

Í vefhönnun þessa vefs er mikil áhersla á skýrt og einfalt aðgengi að viðamiklum upplýsingum um hina ýmsu þjónustu og starfsemi HSN og er að stórum hluta tekið mið af þeim starfsstöðvum sem starfræktar eru og þá þjónustu sem í boði er á hverjum stað, t.a.m. komur sérfræðinga á starfsstöðvarnar, opnunartíma, starfsfólk og margt fleira.

Vefurinn er einnig litríkur, með áherslu á fjólubláa litinn. Kíktu inn á vef HSN, við erum alveg sérstaklega ánægð með hvernig til tókst!