Satt Restaurant með gómsætan vef

22. mars 2016
Stefna Ehf
Nýr vefur Satt Restaurant á Reykjavík Natura hótelinu er kominn í loftið
Nýr vefur Satt Restaurant á Reykjavík Natura hótelinu er kominn í loftið

Við höfum sett enn einn vefinn í loftið fyrir Icelandair hótelin, en það er vefur Satt Restaurant, sem er veitingastaðurinn á Reykjavík Natura hótelinu, áður Hótel Loftleiðir.

Á Satt Restaurant sameinast gamlar hefðir við nútímann með léttri og hollri matargerð þar sem ferskleiki og bragðgæði fá að njóta sín til fulls. Á Satt er m.a. lögð áhersla á glúteinlausa valkosti í brauðmeti og pizzum og á sólríkum dögum er fátt betra en að setjast út á Pallinn.

Við óskum Satt til hamingju með nýja vefinn, kíktu á hann núna og sjáumst á Satt!