Vakinn.is

30. júní 2014
Stefna Ehf
Gæða- og umhverfiskerfi ferðaþjónustunnar, Vakinn, hefur fengið andlitslyftingu.
Gæða- og umhverfiskerfi ferðaþjónustunnar, Vakinn, hefur fengið andlitslyftingu.

Vefsvæði Vakans, gæða- og umhverfiskerfis ferðaþjónustunnar, var tekið í notendaprófanir fyrir skemmstu og í framhaldi af því var vefurinn endurhannaður með nýjum áherslum.

Gæðakerfi Vakans er ætlað öllum þeim fyrirtækjum sem starfa í ferðaþjónustuiðnaðnum. Með þátttöku í Vakanum gefst fyrirtækjum kostur á að fara gagngert í gegnum alla þætti rekstursins í samstarfi við starfsfólk Vakans og innleiða gæðastjórnun sem skilar sér í betri og öruggari þjónustu til viðskiptavina.

Vefurinn gegnir því hlutverki að veita notendum upplýsingar um hvað Vakinn er, hvernig þátttökuferlið gengur fyrir sig og hver ávinningurinn er af því að vera með gæðaflokkaða þjónustu. 

Stefna óskar Vakafólki til hamingju með nýja vefinn - vakinn.is