Visit Tröllaskagi

09. febrúar 2015
Stefna Ehf
Hvernig væri að heimsækja Tröllaskaga? Ef það er ófært landleiðina þá er allavega alltaf hægt að kíkja á visittrollaskagi.is.
Hvernig væri að heimsækja Tröllaskaga? Ef það er ófært landleiðina þá er allavega alltaf hægt að kíkja á visittrollaskagi.is.

Vefurinn VisitTrollaskagi.is var opnaður nýlega. Vefurinn er var hannaður og settur upp af starfsfólki Stefnu og er tilgangur hans að veita upplýsingar um hvað skaginn hefur upp á að bjóða fyrir þá sem sækja hann heim.

Á vefnum er hægt að fá upplýsingar um gistingu, afþreyingu, veitingar og viðburði á svæðinu. Mjög auðvelt er að skorða leitina og finna það sem maður leitar að. 

 

Við hjá Stefnu óskum Dalvíkur- og Fjallabyggð innilega til hamingju með nýja vefinn.