Starfandi frá 2003
og í dag með yfir
40 starfsmenn


Fyrirtækið var stofnað þann 9. september 2003. Starfsmenn Stefnu eru yfir 40 í dag og hefur fyrirtækið náð góðum árangri með vefumsjónarkerfið Moya og hin ýmsu bókunarkerfi.
Stefna lagði frá upphafi áherslu á víðtæka þjónustu á sviði upplýsinga-tækni og hugbúnaðarþróunar á sviði veflausna.
Í dag einbeitir það sér eingöngu að hönnun, þróun og sölu á hugbúnaði.

Tveir menn standa við hlið hvors annars fyrir framan skilti sem segir stefina

Tölum saman

Contact Us

Sendu okkur tillögu að fundi, þú átt líka kost á fyrirspurn á bókhaldið okkar eða sérstaka styrktarbeiðni.

Fáðu fría ráðgjöf

hjá sérfræðingum okkar


Maður með skegg og bláa skyrtu brosir fyrir myndavélinni.

Róbert Freyr

Jónsson

Sölustjóri / Ráðgjöf

Kona með sítt brúnt hár er brosandi og klædd í svarta skyrtu.

Halla Hrund
Skúladóttir

Viðmótshönnun / Ráðgjöf

Maður með gleraugu og flétta skyrtu brosir að myndavélinni.

Matthías
Rögnvaldsson

Viðskiptaþróun / Ráðgjöf

Maður með skegg og bláa skyrtu brosir fyrir myndavélinni.

Snorri
Kristjánsson

Viðskiptatengsl / Ráðgjöf

Maður með gleraugu og skegg er í svartri skyrtu.

Pétur Rúnar

Guðnason

Markaðsstjóri / Ráðgjöf

Kaffibolli á blári undirskál á hvítum bakgrunni.

Þrjár starfsstöðvar, yfir 40 starfsmenn

Starfsmenn Stefnu koma úr öllum áttum tölvugeirans og hefur það átt stóran þátt í hve vel hefur tekist upp við þróun og sölu á vefumsjónarkerfinu Moya. Frá upphafi hefur Stefna keppt að því að vinna sér inn traust viðskiptavina sinna með áreiðanleika, þjónustulund og hugvitssömum lausnum á vandamálum. Stefna hefur unnið að fjölmörgum sérlausnum fyrir fyrirtæki og stofnanir og veitt ráðgjöf um rekstur upplýsingakerfa, tekið þátt í alþjóðlegum verkefnum en hugsar fyrst og fremst um persónulega og vandaða þjónustu fyrir alla viðskiptavini sína.

Reynsla og þekking starfsmanna hefur orðið til þess að Stefna er rótgróið fyrirtæki með marga öfluga og hliðholla viðskiptavini. Einkenni Stefnu eru persónuleg og góð þjónusta, vönduð vinnubrögð og við vinnum hratt og vel að úrlausnum vandamála.


Í dag er Stefna með þrjár starfstöðvar; í Glerárgötu 34 (1. hæð), 600 Akureyri og í Urðahvarf 8 (3. hæð), 203 Kópavogi og Í Uppsala Svíþjóð.


Kennitala Stefnu ehf: 5209032750
D&B DUNS Number: 64-706-9553

Frá upphafi hefur Stefna keppt að því að vinna sér inn traust viðskiptavina sinna með áreiðanleika, þjónustulund og hugvitssömum lausnum á vandamálum.


Við höfum unnið að sérlausnum fyrir fyrirtæki og stofnanir, veitt ráðgjöf um rekstur upplýsingakerfa, tekið þátt í alþjóðlegum verkefnum. Við leggjum áherslu á gott starfsumhverfi og vandaða þjónustu.

Einkenni Stefnu eru persónuleg og góð þjónusta, vönduð vinnubrögð og við vinnum hratt og vel að úrlausnum vandamála.


Í dag er Stefna með þrjár starfstöðvar; í Glerárgötu 34 (1. hæð), 600 Akureyri og í Urðahvarf 8 (3. hæð), 203 Kópavogi og Í Uppsala Svíþjóð.