Einfaldaðu líf fólks með rýni leiðakerfisins
Leiðakerfið, sem einnig kallast valmynd og er nátengt því sem nefnist veftréð, er grunnuppbyggingin á vefnum þínum. Það getur verið einfaldast að sjá fyrir sér leiðakerfið sem tré (veftré) því það kvíslast oftar en ekki í þrjú eða fjögur stig.
Hvað eiga hlutirnir að heita?
Helsta leiðarljósið í nafngiftum á atriðum valmyndar ætti að vera hvaða orðalag nota viðskiptavinir mínir? Mikilvægt er að vefurinn tali sama mál og notendurnir, því þannig eru auknar líkur á að valmyndin nýtist til fulls.
Það eru nokkrar leiðir til að rýna í orðanotkunina:
Hlustaðu á hvaða orðalag viðskiptavinir þínir nota í samtölum við þig og sín á milli, til dæmis í fyrirspurnum, umræðum á netinu og símtölum.
Framkvæmdu einfaldar notendaprófanir með 4-5 skilgreindum verkefnum og horfðu yfir öxlina á þeim sem leysa verkefnin (án þess að trufla/leiða notendur áfram).
Skoðaðu hvaða leitarorð eru algengust.
Skoðaðu hvaða orðalag samkeppnin notar.
Þrjú nöfn yfir sama hlutinn
Þegar þú velur lýsandi orð í veftréð/leiðakerfið skaltu hafa í huga ólík hlutverk sem lýsigögnin hafa:
Í leiðakerfinu á orðanotkun að vera stutt, lýsandi og gegnsæ.
Fyrirsögn síðunnar getur verið lengri, gildishlaðin og upplýsandi.
Titill (title í HTML kóðanum) er eingöngu sýnilegur í flipa vafrans og Google leitarniðurstöðum.
Dæmi um þetta getur verið eftirfarandi orðanotkun:
Fræðsla - í leiðakerfinu
Fróðleikur um allt milli himins og jarðar - fyrirsögn síðunnar
Fróðleikur sem kemur þér í gott skap - titill fyrir Google leitarniðurstöður
Horfðu á 10 eða 20 mikilvægustu (mest sóttu) síðurnar á vefnum þínum með þetta í huga.
Tvenns konar sýn á veftréð
Í Moya getur þú fengið tvenns konar yfirlit leiðakerfisins/veftrésins, annars vegar með því að opna „Veftré“ og hins vegar með því að smella þar á „Raða efni“.
Hér má sjá hefðbundna sýn á hluta veftrésins hér á stefna.is:

Á myndinni má sjá hvernig nafn síðunnar er í sér dálki, tenging við efnið (í viðeigandi einingu) er í næsta dálki, þá kemur sér dálkur fyrir lýsigögnin (META lýsing, META lykilorð og mynd fyrir samfélagsmiðladeilingar) og í síðasta dálkinum er hnappur til að breyta og eyða úr veftré.
Þegar smellt er á "Raða veftré" birtist önnur sýn þar sem sjá má allar slóðirnar eins og þær myndast sjálfkrafa út frá hverri yfirgrein:

Í þessari sýn er ekki hægt að framkvæma neinar aðgerðir, aðrar en að draga hverja línu og færa hana upp/niður innan sömu yfirgreinar eða færa hana á milli yfirgreina.
Endurvísanir þegar síða er færð til
Athugið að þegar grein er færð í aðra yfirgrein, þá breytist slóðin sjálfkrafa og því ætti að útbúa endurvísun af eldri slóð yfir á þá nýju. Ef síðan „Hollráð fyrir netverslun“ er færð frá /is/hvad-gerum-vid/vefverslanir/ yfir á /is/hvad-gerum-vid/stafraen-vegferd þá breytist slóðin á viðeigandi hátt. Það þýðir að viðeigandi síða verður tímabundið ekki aðgengileg úr Google. Leiðakerfið á vefnum uppfærist sjálfkrafa, en aðrar síður sem vísa á úrelta slóð taka ekki við sér sjálfkrafa. Áður en þú breytir staðsetningu/slóð er því gott að hafa eftirfarandi í huga:
Útbúa endurvísun í veftrénu úr gömlu slóðinni yfir á nýja staðinn, þá halda allar vísanir áfram að virka.
Google uppfærir leitargrunninn sinn yfirleitt á nokkrum dögum.
Vísanir í gömlu slóðina á þínum eigin vef getur þú uppfært, en leiðakerfið uppfærist sjálfkrafa.
Vísanir í gömlu slóðina á öðrum vefjum getur þú óskað eftir að verði breytt.
Til að útbúa endurvísun þarf að fylgja eftirfarandi skrefum:
Geyma/afrita gömlu slóðina, ef hún er týnd geturðu fundið hana með því að gúggla eftir síðunni sem þú færðir.
Opna veftréð og velja þar „Endurvísanir“ og þar „Bæta við“.
„Gömul slóð“ er slóðin á síðuna eins og hún var áður (sú sem núna skilar 404 villu).
„Ný slóð“ er valin úr veftrénu.
Þú getur prófað endurvísunina með því að gúggla eftir síðunni og smella á niðurstöðuna í Google.
Svo lengi sem síðan sem þú vilt vísa á er í veftrénu, þá geturðu útbúið svona endurvísanir eins oft og þú vilt. Endurvísanir er líka hægt að nota til að útbúa skammslóðir inn á efni á vefnum (til að nota í prentefni til dæmis).
Þá er að koma sér að verki!
Þú getur byrjað smátt og unnið verkefnið jafnt og þétt. Láttu það ekki vaxa þér í augum, hlustaðu á notendur, horfðu gagnrýnum augum á fyrsta og annað stig í leiðakerfinu og taktu reglulega rýni og samtal um leiðakerfið við þá sem standa verkefninu næst.
Að sjálfsögðu erum við í Stefnu alltaf boðin og búin að taka samtalið og veita ráðgjöf í umbótaverkefnum sem þessum. Heyrðu í okkur ef þörfin kviknar!