Það er ekki til nein töfralausn sem fær gervigreindartól til að nota upplýsingar á þínum vef frekar en öðrum. Það er þó hægt að hjálpa gervigreindinni að nálgast upplýsingar og þannig auka líkurnar á að efni á þínum vef sé notað í svör og ráðleggingar.
Mállíkönin
Þegar Claude, Gemini eða Chat GPT eru beðin um ráð, fara þjálfuð risamállíkön af stað og útbúa upplýsingarnar í rauntíma. Mállíkönin eru þjálfuð í að skilja texta og forritunarmál, búa til texta og að greina skjöl.
SEO og GEO
Grunnatriði leitarvélabestunar, SEO, eru enn í gildi. Með tilkomu gervigreindartólanna hefur bæst við það sem kallað er gervigreindarbestun, eða GEO, sem stendur fyrir „Generative Engine Optimisation“.
Áður en við örvæntum yfir auknu álagi við alla þessa bestun skal strax tekið fram að vinnan fyrir SEO og GEO fer saman. Það besta er svo að samfara þeirri vinnu má bæta verulega aðgengi fólks að upplýsingunum.
Textinn er vinur okkar
Það virkar mótsagnakennt í heimi þar sem við notum sífellt meira og meira myndmál í samskiptum að þegar kemur að mállíkönum er það textinn sem skiptir höfuðmáli.
Við viljum auðvelda gervigreindartólunum að lesa okkar vef og það gerum við með góðum og réttum texta á réttum stöðum.
Látum myndir og myndbönd ekki sjá eingöngu um framsetningu á mikilvægum upplýsingum.
Aðgengi að upplýsingum
Mállíkön eru þjálfuð til að nota efni sem nýtist fólki. Aðgengi hefur alltaf skipt máli á vef og skiptir enn meira máli núna. Það er engin betri leið en að stækka markhópinn á netinu en að fylgja aðgengisstöðlum, því þeir eru eins konar leiðarvísir að því að gera síðuna gervigreindarvæna.
Á meðan við notum lýsandi hlekki, réttar stærðir af fyrirsögnum, alt-texta þegar það á við, forðumst skammstafanir og merkjum efni rétt í kóðanum erum við að leitarvélabesta fyrir bottana.
Fyrstu skrefin
- Skoðum textann á síðunni okkar. Reynum að vera hnitmiðuð og nota orðin sem viðskiptavinir okkar nota.
- Pössum að hafa textabúta ekki of langa og nota lýsandi fyrirsagnir í réttri stærð.
- Erum við að nota myndbönd til að koma mikilvægum upplýsingum til skila? Höfum textaútgáfu líka.
- Tökum til í lýsingum fyrir myndir. Eru alt-textar þar sem það á við?
- Grisjum úr gamalt efni. Mállíkön styðjast frekar við efni sem hefur verið uppfært.
- Skoðum tölfræðina. Eru einhverjar síður sem enginn heimsækir og má eyða? Hraði á vefnum skiptir máli.
- Notum lýsandi texta fyrir hlekki. Verum vandlát á hvað við hlekkjum á.
- Notum úttektartól eins og Wave eða Lighthouse.
- Kynnum okkur aðgengisstaðalinn WCAG og lesum okkur til um aðgengi á vef.
