Fara í efni
Til baka í yfirlit

Lokunartímar eru hinir nýju opnunartímar

Eins og svo oft áður erum við að horfa á framsetningu upplýsinga - í þetta skiptið lokunartíma um páskana og kíkjum á dæmi um hversu flókið getur verið að gera hlutina einfalda.
Pétur Rúnar Guðnason

Komst þú að lokuðum dyrum?

Sá sem þetta ritar kom að lokuðum dyrum um páskana, vafalaust mér að kenna!

En svo fór ég að kafa aðeins dýpra og tók stuttan „netrúnt“ og velti upp hvernig opnunartímar lokunartímar eru settir fram hjá nokkrum stórum verslunum.

Sérlausnin sem rúmar ekki sveigjanleika

Á vef Kringlunnar er sniðug lausn sem sýnir „OPIÐ Í DAG“ með fellivalmynd fyrir alla vikuna.

Hún rúmar þó ekki sértækar lokanir yfir hátíðirnar. Lausnin var því banner á forsíðu sem fer auðveldlega framhjá augum sem líta ekki neðar.

Í textanum er DRM-LND opnunartími neðst, sem setti skilning minn úr skorðum á annan í páskum, því verslanir voru allar lokaðar þó DRM-LND væri opið 12-18.

N1 og myndalausnin

Ef mynd inniheldur texta þarf hún að vera með viðegandi alt-merkingu svo blindir og sjóndaprir geti lesið innihaldið.

Hjá N1 var grafíkdeildin búin að úbúa mjög fína mynd til að stilla upp í verslunum og sjoppum.

Svona mynd á þó helst ekki heima á vefnum, því myndin er ekki sýnileg þeim sem nýta skjálesara.

Of algeng redding sem við viljum gjarnan útrýma sem hraðast.

Ef óhjákvæmilegt er að nota mynd, verða viðeigandi alt-merkingar á myndinni að vera til staðar, innihaldi hún texta sem skiptir máli og bætir samhengið.

Hinn ósýnilegi banner: Bónus

Hvað sérð þú fyrst þegar þú horfir á skjáskotið af forsíðu Bónuss?

Því miður eru bannerar sem þessir (þó gulir séu) oft ósýnilegir notendum, en kanínurnar samt sætar.

Við erum orðin þjálfuð í að horfa framhjá auglýsingaplássi til að finna upplýsingarnar.

Það á enn frekar við þegar næsti hlekkur fyrir neðan, Opnunartímar, innihélt ekki upplýsingar um lokanir/opnanir um páskana.

Ef við förum út í smáatriðin má svo segja að notkun á tveimur orðum; afgreiðslutímar og opnunartímar, einfaldi ekki málið.

Þegar grafíkin verður að ráðgátu

Hjá Góða hirðinum er grafíkdeildin að vinna með lokunar-borða með vísun í lokun vegna framkvæmda eða þegar lögreglan lokar svæðum.

LOKAÐ LOKAÐ LOKAÐ borðinn er vísun í að lokað sé alla dagana sem taldir eru upp, en lesandinn þarf svolítið að geta í eyðurnar því aðeins var opið laugardaginn 4. apríl (sem er skýrt!).

Svona á að gera þetta: Krónan

Krónan gerði þetta vel!

Eins og stundum er svona samantekt ófullkomin og ekki fullkomlega sanngjörn gagnvart þeim sem eru teknir fyrir - afsakið það!

Markmiðið er að vekja athygli á mikilvægi þess að hugsa hönnun og framsetningu upplýsinga fyrir fólkið.

Það er flóknara að gera hlutina einfalda.