Meirihluti sveitarfélaga kaus vef frá...
Í tilefni af kosningum eru hér nokkrar hugleiðingar um vefmál sveitarfélaga og þróunina undanfarið.
Á síðasta ári hófum við að nota Craft CMS í vefi sveitarfélaga og þeir eru nú orðnir 6, en að auki er nýr vefur Alþingis í smíðum hjá okkur með Craft CMS.
Hvað þarf að vera á forsíðu?
Þetta er eilíf spurning, en henni er í sjálfu sér fljótsvarað: Það sem á mest og best erindi við fólkið sem skoðar vefinn. Forsíðan á ekki að svara öllum spurningum, en hún leiðir mig áfram í mikilvægustu upplýsingarnar, þær eru aðeins ólíkar á milli sveitarfélaga, en hér er ágæt upptalning:
- Opnunartímar, kennitölur, símanúmer, netföng og heimilisföng.
- Mínar síður - íbúagátt
- Gjaldskrá og reiknivél(ar).
- Starfsfólk og/eða tengiliðir skrifstofu.
- Sorphirða og sorphirðudagatal.
- Lausar lóðir - mikilvægi þess fer alfarið eftir framboði af lausum lóðum.
Þar að auki má auðvitað týna til fasta liði á borð við:
- Leit og þýðingarmöguleika.
- Ábendingarmöguleika eða eyðublað til að hafa samband.
- Fréttir, tilkynningar og viðburðir.
En hvað með fundargerðirnar?
Fundargerðirnar eru vitaskuld mikilvægar fyrir stjórnsýsluna, en spurningin sem við spyrjum stundum er: „Hvað vill íbúi sjá strax á forsíðunni til að létta sér lífið?“
Þegar valið er um flýtival á forsíðu þarf ekki síður að huga að þessum þætti. Jú fundargerðir eru mikið sóttar (einna helst af stjórnsýslunni sjálfri) og því þarf aðgengi að þeim að vera skýrt og snuðrulaust. Skammval á borð við opnunartíma og gjaldskrár þjónar íbúum (frekar en stjórnsýslunni) og eru e.t.v. ekki eins augljóslega undir tilteknum flokki í valmyndinni.
En jú, það er sjálfsagt að hafa fundargerðir í flýtivali á forsíðunni, en hverjum þjónar það?
Stór hluti íbúa fer frekar inn á vef sveitarfélagsins til að sjá opnunartíma sundlauga en nokkuð annað.
Gullnar reglur í framsetningu - fyrir skýrleika
Hér eru nokkrar gullnar reglur fyrir skýrleika og læsileika á upplýsingum:
- Notaðu gardínur (accordions) eftir því sem við á, þetta bætir læsileikann í farsímaútgáfu (sem er allt að 2/3 af flettingum nú á dögum).
- Sýndu myndir af staðsetningu og byggingum eftir því sem við á. Gott er að sýna mannlíf, en byggingarnar tengjum við líka beint við þjónustuna sem er veitt. Myndir af sundlauginni segja meira en langar lýsingar á aðstöðunni (pottar, gufa o.þ.h.).
- Takmarkaðu PDF skjöl eins og hægt er. Gjaldskrár eiga frekar heima í töflu eða jafnvel sem reiknivél. Markviss fækkun PDF skjala bætir heiminn.
- Fastar venjur á borð við brauðmola eiga enn sinn sess, þó það sé aðeins til stuðnings.
- Hugaðu vel að því sem er í fætinum, fóturinn á að veita helstu samskiptaupplýsingar og má innihalda flýtivalmynd á sama hátt og forsíðan. Fóturinn er eins konar öryggisnet.
- Hafðu skýrt hvenær farið er af vefnum, þ.e.a.s. þegar vísað er á síður byggðasamlags (t.d. fyrir málefni fatlaðra), grunnskóla eða annarra stofnana.
Aðgengi er ekki valkvætt
Sveitarfélögum ber að tryggja aðgengi. Einfalt er að mæla og fylgjast með hversu vel hver vefur fer eftir WCAG aðgengisstöðlum. Hér eru nokkur dæmi um einkunn forsíðu nokkurra sveitarfélaga landsins (mælt 18. maí 2026 að kosningum loknum), mælt með https://wave.webaim.org/.
Þessar tölur eru alls ekki endanlegur dómur um vefinn í heild en sýnir hvar tækifærin liggja til að gera enn betur (á nýju kjörtímabili). Okkur gleður að sjá góða einkunn nýjustu vefjanna okkar fyrir sveitarfélög:
- Vestmannaeyjar: 9,0 (nýr vefur frá okkur í Craft CMS)
- Fjarðabyggð: 8,9 (nýr vefur frá okkur í Craft CMS)
- Bolungarvík 8,9 (nýr vefur frá okkur í Craft CMS)
- Reykjavík: 8,8
- Kópavogur: 5,8
- Hafnarfjörður: 6,9
- Reykjanesbær: 7,9
- Garðabær: 9,1
- Akureyri: 8,4
- Mosfellsbær: 5,4
- Árborg: 6,2
- Akranes: 6,2
- Múlaþing: 3,8 (uppfært: með smá lagfæringum komum við vefnum í 7,4)
- Fjallabyggð: 6,2
- Skagafjörður: 8,0
Notendaprófanir - blákaldur veruleikinn
Notendaprófanir eru eitt af uppáhalds verkfærum okkar til að bæta skiljanleika, þar sjáum við svart á hvítu hvernig fólk raunverulega notar og skilur vefina.
Í kjölfar notendaprófana, þar sem við leggjum einföld en sí-þyngri verkefni fyrir fólk að leysa koma niðurstöður og úrbótatillögur sem gróft má flokka í þrennt:
- Orðalag og uppbygging, breytingar á texta og stundum efni fært til í leiðakerfinu til að bæta skýrleika. Oftast hægt að framkvæma strax.
- Umfangsmeiri breytingar á uppbyggingu og flæði, myndrænar tillögur sem oftast er hægt að framkvæma hratt.
- Grunnbreytingar útlits sem krefjast frekari yfirlegu og jafnvel sértækra prófana.
Dæmi um þetta getur verið flokkurinn „Heimili“, þar geta íbúar fundið allt sem viðkemur heimilinu hvort sem það eru breytingar á húsnæði, fasteignagjöld eða annað óskylt eins og dýrahald og sorphirða.
Vefurinn er auðvitað aldrei tilbúinn, með því að fylgja tækni- og nytsemiskröfum, bæta skiljanleika með rýni og prófunum má alltaf gera góðan vef betri.
Við erum klár í samtalið með sveitarfélögum á nýju kjörtímabili!
