Fara í efni
Til baka í yfirlit

Tilkynning vegna öryggisgalla í PHP (Uppfært)

Í dag var tilkynnt um tvo alvarlega öryggisgalla í PHP, forritunarmálinu sem flestar heimasíður heims eru þróaðar í. Gallarnir eru þess eðlis að tölvuþrjótar gætu reynt að nýta sér þá til að komast inn á vefi sem keyra á PHP og eru opnir á netinu. PHP-teymið, sem þróar og viðheldur forritunarmálinu, hefur boðað lagfæringu í dag.

Hvað þýðir þetta fyrir þinn vef?

Stefna brást strax við um leið og fyrstu upplýsingar bárust:

  • Við erum búin að grípa til ráðstafana og uppfæra kerfin sem heimasíður viðskiptavina okkar keyra á.
  • Engar vísbendingar eru um að reynt hafi verið að misnota gallana gegn vefjum hjá Stefnu.
  • Öryggisteymi Stefnu mun vakta stöðuna áfram og grípa til frekari ráðstafana ef þörf krefur.
  • Þegar endanleg lagfæring frá PHP kemur út í dag setjum við hana inn án tafar.

Þarf ég að gera eitthvað?

Nei. Ef vefurinn þinn er hýstur hjá Stefnu þarftu ekkert að gera. Við fylgjumst með málinu og uppfærum þessa frétt þegar eitthvað nýtt kemur fram.

Spurningar má senda á þjónustuborð Stefnu: hjalp@stefna.is
 


Uppfært 21. október kl. 14:54

Opinber öryggisuppfærsla (patch) frá PHP-teyminu hefur nú verið gefin út og er Stefna búin að innleiða hana á okkar umhverfi.

  • Opinber lagfæring keyrð inn: Búið er að koma opinberu öryggisuppfærslunni frá PHP á netþjóna okkar. Samhliða er unnið að því að klára uppfærslur á síðustu vefkerfunum.
  • Craft CMS: Allir vefir sem keyra á Craft CMS hafa verið uppfærðir.
  • Moya CMS: Búið er að öryggisuppfæra alla vefi í útgáfu 1.16.2.
  • Vöktun: Öryggisteymi okkar vaktar stöðuna og server logs áfram.

Uppfært 22. október kl. 08:22

  • WAF: Fyrir kl. 13:44 í gær 21. október voru útfærðar sértækar varnir í WAF (Web Application Firewall).