Fara í efni

Félag íslenskra náttúrufræðinga

Við svöruðum kallinu um þægilegra og sveigjanlegra vefumsjónarkerfi með Craft.
Craft CMS

Nýr vefur Félags íslenskra náttúrufræðinga, FÍN, var opnaður í nóvember 2025. FÍN er stéttarfélag sem er opið öllum sem lokið hafa námi á háskólastigi. 

Félaginu fannst kominn tími á nútímavæðingu og andlitslyftingu. Vefurinn sem var fyrir var að mörgu leyti barn síns tíma, bakendinn orðinn lúinn og kominn í lífslokameðferð hjá þjónustuaðila. Þau vantaði bæði þægilegra og sveigjanlegra vefumsjónarkerfi.

Samstarfið við Stefnu var til fyrirmyndar. Hlutirnir gengu hratt og örugglega fyrir sig og það var hlustað á öll smáatriðin sem komu fram okkar megin en sömuleiðis komu mjög góðar og hagnýtar tillögur frá Stefnu á móti. Eftirvinnslan hefur líka gengið vel, það er aldrei neitt vesen og engar hindranir. Þetta er þriðji vefurinn sem ég stýri endurnýjun á en sá fyrsti sem ég vinn með Stefnu. Ég myndi glaður gera það aftur þegar fjórða svona verkefnið kemur.

— Siggeir Fannar Ævarsson, sérfræðingur hjá FÍN

 Fúnksjón vefráðgjöf undirbjó vinnuna við nýja vefinn og Stefna tók svo við boltanum.