Fara í efni

ÍSÍ

Nýr vefur sem sýnir starfsemi Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands á lifandi hátt.
Craft CMS
UX & efnishönnun

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) er regnhlífarsamtök íslenskra íþrótta og sameinar íþróttahéruð og sérsambönd um allt land. 

ÍSÍ leiðir stefnumótun í íþróttamálum, styður við afreks- og almenningsíþróttir og vinnur að eflingu lýðheilsu. Sambandið er jafnframt fulltrúi Íslands í alþjóðlegu íþróttasamstarfi og Ólympíuhreyfingunni.

Markmiðið með nýjum vef var að sýna betur fjölbreytta starfsemi sambandsins, íþróttafélaga um allt land og þeim mörgu lýðheilsuverkefnum sem eru orðin hluti daglegs lífs margra landsmanna. Góð dæmi eru Hjólað í vinnuna og Lífshlaupið.

Lögð var áhersla á að gera upplýsingar um Afreksmiðstöð Íslands og ólympíuverkefni sambandsins skýrari og aðgengilegri, með það að markmiði að styðja við afreksstarf og alþjóðlega þátttöku íslenskra íþrótta.

Það sem var gert: 

  • Áherslur í hönnun voru að hafa vefinn léttan og stílhreinan en það leyfir skemmtilegu myndefni ÍSÍ að njóta sín.
  • Viðburðum er gert hátt undir höfði og þeir eru flokkaðir.
  • Fræðsluefni er aðgengilegt á einum stað, einnig flokkað eftir umfjöllunarefni.