Fara í efni
Til baka í yfirlit

Hvers vegna völdum við Craft CMS?

Með réttu verkfæri verður vinnan léttari. Craft CMS er sveigjanlegt, öflugt og gerir lífið betra í efnisvinnslu á vefnum.
Pétur Rúnar Guðnason

Við höfum notast við Craft CMS í fjölmörgum verkefnum, hér eru helstu ástæður þess að kerfið hefur slegið í gegn hjá okkur:

  • Notendavænt viðmót og fljótlegt að læra á kerfið, jafnvel með litla reynslu af vefkerfum. Ritstjórnarviðmótið er með beina vísun í vefinn eins og hann lítur út.
  • Forskoðun í rauntíma sýnir nákvæmlega hvernig efnið mun líta út á síðunni áður en það er birt.
  • Sveigjanlegir efnisflekar sem auðvelt er að raða upp og færa til á síðunni, þannig er hægt að sérsníða síður án þess að raska heildarhönnun.
  • Öflug grunnvirkni getur sparað mikla yfirlegu og einfaldað vinnuna, að auki sækjum við viðbætur úr markaðstorgi (plugin store) og smíðum okkar eigin viðbætur.
  • Umsjón með mörgum vefsvæðum, tungumálum eða undirvefjum úr sama stjórnborðinu auðveldar allt utanumhald.
  • Ólík skráarsnið á borð við myndir, myndbönd eða PDF skjöl eru studd af Craft, að auki er innbyggt öflugt viðmót til að vinna með myndir (image editor).
  • Aðgangsstýringar eru mjög sveigjanlegar, útgáfustýring er innbyggð og möguleikar á að tímastilla birtingu efnis.
  • Craft er sjálfstætt og óháð óháð þjónustuaðila, á bakvið kerfið stendur Pixel / Tonic sem stýrir þróuninni og viðheldur háum gæðastaðli á kóða, sem sjá má í opnu kóðasafni þeirra.
  • Stjórnborð sem virkar vel í símum og spjaldtölvum gerir hópnum kleift að uppfæra eða lagfæra hluti á ferðinni.
  • Enginn uppfærslukvíði fylgir Craft, því við sjáum um uppfærslurnar á hugbúnaðinum sem hluta af okkar þjónustu.

Undir húddinu

Út frá tæknilegu hliðinni erum við líka yfir okkur ánægð með styrkleika Craft CMS umfram „hrein headless kerfi“ á borð við Contentful, Strapi og Payload:

  • Samhengið við vefinn þinn: Kerfi eins og Contentful og Payload geta  virkað eins og gagnagrunnar fyrir ritstjóra, þar sem erfitt er að átta sig á samhengi efnisins á meðan unnið er í því. Craft viðmótið er fágað og tengist hönnun vefsins beint og er hannað með þarfir ritstjórans í huga.
  • Hýsingarumhverfið: Önnur kerfi krefjast þess oft að framendi (vefurinn sjálfur) og bakendi (gögnin) séu smíðaðir og hýstir sem tveir aðskildir hlutir. Craft getur séð um bæði efnisstýringu og birtingu í einu og sama umhverfinu. Það einfaldar hýsingu, styrkir okkur í þjónustunni og dregur úr kostnaði bæði í upphafi og til lengri tíma.
  • Hybrid kerfishögun: Ólíkt kerfum eins og Strapi eða Contentful, sem eru eingöngu headless, er Craft bæði hefðbundið vefumsjónarkerfi og headless (gögn sótt með GraphQL). Þannig getum við valið hagkvæmustu og bestu tæknina fyrir hvert verkefni, án þess að festast í einni nálgun.
  • Tengingar innbyggðar: Craft býður upp á öflugar tengingar, við höfum góða reynslu af tengingum inn og út úr kerfinu, m.a. með Shopify-tengingu og inn á aðra miðla. Við höfum einnig sett notað Craft til að skaffa gögn inn á tiltekið svæði á Ísland.is vefinn.

Við völdum Craft eftir mikla yfirlegu

Í kjölfar þess að hafa smíðað og þjónustað okkar eigið vefumsjónarkerfi í yfir 20 ár fórum við á stúfana og prófuðum mörg vefkerfi.

Eftir nokkur verkefni varð okkur ljóst að Craft CMS væri að tikka við þau box sem við viljum sjá í vefumsjónarkerfi, sem við byggjum á þörfum íslenska markaðarins og þá hundruði vefja sem við höfum sett upp.

Forskoðun er einn af öflugustu eiginleikunum í Craft CMS, hér má sjá hvernig reitirnir birtast áfram vinstra megin á skjánum með forskoðun opna. Síðan uppfærist eftir því sem efninu er breytt.

Vilt þú vita meira?

Við vinnum náið með okkar viðskiptavinum frá fyrstu hugmynd að fullbúinni lausn: