Craft CMS
Notendamiðað, lipurt og öruggt
Með Craft ertu með skýra sýn á hvernig efnið mun líta út á vefnum þínum, við sjáum um reksturinn í skýinu okkar, öryggisuppfærslur eftir þörfum svo þú getir sofið rótt.
Dagleg ritstjórn er létt og þægileg fyrir ritstjóra og hægt að raða upp og breyta síðum með forskoðun. Þú hefur því aukið frelsi, sveigjanleika til að þróa vefinn áfram og vefurinn vex með þínum þörfum til framtíðar.
Við höfum yfir 20 ára reynslu af þjónustu við stóra sem smáa vefi. Vefurinn þinn getur því vaxið með okkur um ókomin ár, þú getur alltaf heyrt í okkur með forritun, leitarvélabestun eða endurskrif á texta.
Hvers vegna við völdum Craft CMS?
Þú velur það sem hentar:
- Við skrifum textann fyrir þig ef það hentar
- Margir möguleikar á forhönnuðu útliti eininga
- Myndrænni og líflegri framsetning á síðum
- Stöðug þróun nýjunga, engar uppfærslur sem setja allt úr skorðum
- Styður vel við leitarvélabestun og kröfur um hraða
- Hýsing í öruggu umhverfi innan EES

Þjónusta og léttleiki í yfir 20 ár
Við byggjum á reynslu okkar af þjónustu í yfir 20 ár og þróun á okkar eigin vefkerfi.
Með Flex sjáum við draumana rætast um að geta gert flotta hluti hratt, færa viðskiptavinum okkar aukið vald á útliti og efni og geta veitt enn betri þjónustu.
Við styðjum við sjálfstæð vinnubrögð okkar viðskiptavina - þú getur gert hlutina án okkar, en við erum líka til staðar þegar á reynir, í stóru sem smáu:
- Skrif á texta, endurskipulag á gömlum vef, yfirferð á vefnum.
- Notendaprófanir, UX-hönnun og uppröðun síðna.
- Leitarvélabestun sem hjálpar þér að komast á toppinn.
- Sérsmíði þegar það á við.
Nokkur verkefni sem eru okkur kær


Félag íslenskra náttúrufræðinga


ÍSÍ


Nýr vefur fyrir Bolungarvík
Tölum saman og finnum lausn
Sendu okkur skilaboð og við svörum um hæl, eða hringdu í síma 464 8700 og fáðu fund með ráðgjafa.