Stafvæðing hefur bætt aðgengi að þjónustu og upplýsingum, en ekki allir upplifa þessa vegferð eins. Sumir sitja eftir ef við tryggjum ekki gott aðgengi – bæði tæknilegt og mannlegt.
Tæknilegt aðgengi felur meðal annars í sér litaskil, lyklaborðaaðgengi og skjálesarastuðning.
Mannlegt aðgengi snýst um skýran texta, lýsandi fyrirsagnir og að skrifa fyrir fólk.
Aðgengi snertir fleiri en við gerum okkur oft grein fyrir. Það nýtist ekki bara fólki með fötlun, heldur líka þau sem eru í tímaþröng, undir álagi eða einfaldlega vilja fá upplýsingar á skýran og skiljanlegan hátt.
Lykilatriði í upplýsingagjöf:
- Upplýsingar þurfa að vera til staðar
- Þær eiga að vera þar sem fólk á von á þeim
- Þær þurfa að vera á máli sem fólk skilur
Við þurfum ekki að vera sérfræðingar til að leggja okkar af mörkum. Smávægilegar breytingar eins og að nota skýran texta, lýsandi fyrirsagnir og nægilegt línubil gera gæfumuninn.
Aðgengi er ekki lúxus – það er grundvallaratriði sem gerir netið nothæft fyrir alla.
Í stafrænni vegferð reiðum við okkur í auknum mæli á tækni og stafvæðingu ferla til að veita öfluga og skilvirka þjónustu. Stafvæðing er í raun breyting á aðgengi fólks að þjónustu og vörum:
Stafrænir ferlar í staðinn fyrir pappír.
Minni biðtími eftir svörum.
Internetið er alltaf opið en skrifstofur og verslanir eru með opnunartíma.
Það má líkja þessu við samgöngukerfi, sem þarf að tryggja að fólk komist leiðar sinnar og geti sótt vörur og þjónustu.

Býrðu utan alfaraleiðar?
Þetta þýðir bætt aðgengi fyrir flesta.
En stafræn vegferð er ekki eins fyrir alla. Það er hætta á að einhverjir, sem búa ekki í alfaraleið, lendi utan vegakerfisins. Að þeim sé ekki boðið með.
Tæknilegt og mannlegt aðgengi
Aðgengi snýst ekki aðeins um tæknilegar útfærslur heldur einnig um skýra og skiljanlega upplýsingagjöf.
Tæknilegar útfærslur eru á ábyrgð hönnuða, forritara og tæknifólks að tryggja - en gott fyrir öll að vera meðvituð um.
Það er gott er fyrir alla að vera meðvituð um tæknilegt aðgengi, sem felur meðal annars í sér:
góð litaskil
að forðast flókna og óþarfa virkni
lyklaborðaaðgengi, sem leyfir fólki að stjórna tölvu án þess að nota mús
skjálesaraaðgengi, svo hægt sé að nota tölvur með því að lesa upp texta á skjá
Mannlega hliðin er mikilvæg og er sú hlið af aðgengi sem við höfum öll aðkomu að.
Mannlegt aðgengi snýst meðal annars um:
skýran og hnitmiðaðan texta
lýsandi titla og fyrirsagnir
að skrifa fyrir fólk
Aðgengi snertir fleiri en margir halda.
Sumir nota skjálesara eða lyklaborð til að vafra, aðrir eru óvanir tækni- og netnotkun og enn aðrir eru viðkvæmir fyrir skynáreiti.
En mun fleiri njóta góðs af góðu aðgengi. Til dæmis fólk sem er undir álagi, í tímaþröng eða einfaldlega hefur ekki orku til að leita, lesa og skilja langa eða flókna texta.

Allir hafa aðgengisþarfir
Allir hafa aðgengisþarfir.
Sumar aðgengisþarfir eru svo sjálfsagðar og samfélagslega samþykktar að við hugsum ekki um þær sem eiginlegar þarfir.
Tökum dæmi:
Það er venja að hafa kveikt ljós og borð og stóla í fundarherbergjum.
En blindur maður þarf ekki kveikt ljós. Hjólastólanotandi tekur sinn eigin stól með.
Það væri hægt að spara pening með því að slökkva ljósið og hætta að kaupa stóla. En það myndum við sennilega seint gera.
Ef við hugsum um aðgengi frekar sem þarfir fólks kemur í ljós að þær eru oft frekar svipaðar.
Hjólastólanotandi og barnavagn hafa sömu aðgengisþarfir - bæði þurfa ramp eða lyftu til að komast milli hæða.
Skiljanlegt er aðgengilegt
Lykilatriði í upplýsingagjöf er að tryggja skilning. Það er aragrúi af upplýsingum á netinu, en ef við skiljum þær ekki eru upplýsingarnar ónothæfar.
Góð upplýsingagjöf snýst um að miðla upplýsingum þannig að þær séu bæði nothæfar og gagnlegar, að fólk skilji þær og treysti þeim þess vegna.
Lykilatriði í góðri upplýsingagjöf
- Upplýsingar eru til staðar
Við þurfum að vita hvaða upplýsingar fólk raunverulega þarf, en ekki hvaða upplýsingar starfsfólk metur eða heldur að fólk þurfi. - Upplýsingar eru þar sem fólk á von á að finna þær
Við þurfum að staðsetja upplýsingar á réttum vettvangi eins og vef, SMS-áminningu eða hnipp í smáforriti. Við þurfum líka að tryggja að þessar upplýsingar berist fólki á réttum tíma. - Upplýsingar eru á máli sem fólk skilur
Þetta er atriði sem við erum öll sammála um en getur verið flókið að gera.
Framför, ekki fullkomnun
Aðgengi er fyrir okkur öll. Þegar við gerum upplýsingar aðgengilegar jöfnum við tækifæri fólks að ýmiskonar þjónustu.
Við þurfum ekki að vera sérfræðingar í aðgengi til að láta aðgengi okkur varða.
Hér eru nokkur atriði sem þú getur gert strax í dag:
stækkað letur í tölvupósti
notað einföld og algeng orð
skrifað út skammstafanir
notað lýsandi fyrirsagnir
bætt við línubili milli málsgreina
Viltu vita meira?
Ef þú vilt aðstoð, hafðu þá samband.
Þú getur sent okkur línu á radgjof@stefna.is eða bjallað í síma 464 8700.