Fara í efni

Stefna Flex

Með Flex opnast nýr valkostur. Þú færð vefinn frá okkur á aðeins örfáum dögum og tekur svo stjórnina.

Fljótt í loftið, einfalt í umsjón

Flex er í skýinu, þú þarft ekki að pæla í uppfærslum eða viðbótum (plugins) sem hætta að virka. Hraðinn er tryggður (í Core Web Vitals) og hönnunarviðmótið er eins einfalt og Wix en okkar teymi í forritun og þjónustu tryggir að þú færð svör við öllum þínum spurningum.

Við höfum yfir 20 ára reynslu af þjónustu við stóra sem smáa vefi. Vefurinn þinn getur því vaxið með okkur um ókomin ár, þú getur alltaf heyrt í okkur með forritun, leitarvélabestun eða endurskrif á texta.

Þú velur það sem hentar:

  • Við skrifum textann fyrir þig ef það hentar
  • Margir möguleikar á forhönnuðu útliti eininga
  • Myndrænni og líflegri framsetning á síðum
  • Stöðug þróun nýjunga, engar uppfærslur sem setja allt úr skorðum
  • Styður vel við leitarvélabestun og kröfur um hraða
  • Hýsing í öruggu umhverfi innan EES

Þjónusta og léttleiki í yfir 20 ár

Við byggjum á reynslu okkar af þjónustu í yfir 20 ár og þróun á okkar eigin vefkerfi.

Með Flex sjáum við draumana rætast um að geta gert flotta hluti hratt, færa viðskiptavinum okkar aukið vald á útliti og efni og geta veitt enn betri þjónustu.

Við styðjum við sjálfstæð vinnubrögð okkar viðskiptavina - þú getur gert hlutina án okkar, en við erum líka til staðar þegar á reynir, í stóru sem smáu:

  • Skrif á texta, endurskipulag á gömlum vef, yfirferð á vefnum.
  • Notendaprófanir, UX-hönnun og uppröðun síðna.
  • Leitarvélabestun sem hjálpar þér að komast á toppinn.
  • Sérsmíði þegar það á við.
Sjáðu verkin okkar

Nokkur verkefni sem eru okkur kær

Icepharma

2019 settum við upp Vörutorg Icepharma, en síðar varð aðalvefur Icepharma einn sá fyrsti í Stefna Flex hjá okkur.
Sala á netinu Stefna Flex vefur

Satt Restaurant

Vefur Satt Restaurant sýnir vel styrkleika Stefna Flex þar sem myndir og texti fá að njóta sín til fulls.
Stefna Flex vefur

Röntgen Orkuhúsinu

Eitt af þremur fyrirtækjum með starfsemi undir merkjum Orkuhússins sem nýtir þjónustu okkar.
Stefna Flex vefur

Tölum saman og finnum lausn

Sendu okkur skilaboð og við svörum um hæl, eða hringdu í síma 464 8700 og fáðu fund með ráðgjafa.

Senda skilaboð til