Helstu lykilpunktar til að tryggja góðan sýnileika í leitarvélum (Google) eru:
Í lokin á greininni fjöllum við einnig um helstu aðferðir til að stilla til sýnileika gagnvart Google (Search Console) og samfélagsmiðlum (Facebook einna helst) og fylgjast með/mæla árangurinn.
Athugaðu: Ekki mikla verkið of mikið fyrir þér:
Hvernig velurðu mikilvægustu orðin til að leggja áherslu á? Það er í raun einfalt, það eru þau orð sem þínir viðskiptavinir leita eftir. Þú skalt því leggja áherslu á orðalagið sem notað er um þig ekki endilega orðalagið/orðin sem þú notar sjálf(ur).
Athugaðu að oft leitar fólk að gildishlöðnum orðum eins og „ódýrasta“ og „besta“. Slíkt er mjög erfitt að grípa/nota, því yfirleitt er mjög hæpið að fullyrða um vöru og þjónustu í efsta stigi.
Dæmi: Notaðu frekar „rúta“ heldur en „áætlunarferðir“ og „rusl“ frekar en „sorphirða“.
Athugaðu líka að notendur nota jöfnum höndum samsett orð eða fjölorðaleit til að þrengja leitina, eins og „matjurtaræktun“ til jafns við „matjurir ræktun“. Hafðu jafnvægi í notkun samsettra og aðskildra orða sem þessara.
Mikilvægasta staðsetning þeirra orða sem þú vilt að Google taki tillit til eru:
Allt ofantalið nýtist leitarvélinni en textann ætti ekki síður að skrifa og sníða til með tilliti til þess að notandinn finni viðeigandi upplýsingar á viðeigandi stað. Flæði fyrirsagna og texta þarf að vera eðlilegt og þægilegt. Varast þarf of langar fyrirsagnir, of mikinn samfelldan texta og mikilvægt að brjóta upp langan texta með millifyrirsögnum h2 eða jafnvel h3.
Í Google leitarniðurstöðum er oftar en ekki sýnilegur META description texti síðunnar beint fyrir neðan titilinn. Þessi texti er hvergi sjáanlegur á vefnum þínum nema þú afritir/notir sama texta í texta síðunnar. Þennan texta má því sníða sértækt fyrir leitarvélar.
Miða skal við 160 stafabil fyrir META lýsingu (e. description) og passa þarf upp á eftirfarandi viðmið:
Í Moya sérðu hvort META descrition hefur verið stillt beint úr veftrénu, gula íkonið birtist þegar META lýsing hefur verið virkjuð:
Hér hefur þú takmörkuð völd, þú getur ekki haft mikla stjórn á því hvaða vefir vísa inn á þinn vef. Það er einmitt vegna þess hversu erfitt er að stýra þessu handvirkt sem Google og aðrar leitarvélar gefa þessum lið talsvert vægi.
Í praxís virkar þetta þannig að Google gefur hverjum vef ákveðinn stigafjölda fyrir vægi (authority score) sem þýðir að hlekkur af vef Alþingis hefur mun meira vægi en hlekkur af vef Stefnu. Um leið og einn vefur er farinn að vísa út og suður með alls konar orðum og vísunum fellur vægi á þeim vef.
Besta leiðin til að byggja upp áreiðanlega hlekki er að eiga gott samstarf við þína samstarfsaðila og þá sem eru í sambærilegri starfsemi og þú (væntanlega þó ekki keppinautana).
Þessi vinna kallast linkbuilding á ensku, með henni vinnur þú markvisst í því að mikilvægustu undirsíðurnar þínar fái hlekki frá öðrum vefjum. Það krefst handavinnu, samskipta við aðra ritstjóra og setur þá kröfu að vefurinn þinn sé með viðeigandi upplýsingum og traustsins verður.
Hafðu þetta í huga við þessa vinnu:
Hér erum við komin í gæðamál á vefnum, sem skipta sannarlega máli þegar kemur að „dómi Google“ á vefnum þínum í samanburði við keppinautana. Þetta er í sjálfu sér einfalt:
Mikilvægi þessa liðar fer eftir eðli vefjarins. Ef þú rekur netverslun skipta myndir miklu máli, en fyrir vef sveitarfélags er vægi mynda mun minna.
Þegar talað er um lýsigögn mynda er ekki átt við sjálft skráarnafn myndarinnar, rannsóknir á virkni leitarvéla sýna að nafnið skipti óverulegu ef þá yfir höfuð nokkru máli.
Lýsigögn myndarinnar og lýsigögn síðunnar skipta öllu máli þegar kemur að staðsetningu og vægi í Google Image Search, þ.e.a.s. myndaleitinni á Google.
Notkun á title og alt-merkingum ættu að endurspegla þessa virkni:
Dæmi um þetta gæti verið peysa:
alt: "Gul, hálfrennd flíspeysa frá H&M"
title: "Hlý flíspeysa sem lífgar upp á sumarið"
Dæmið að ofan sýnir hvernig alt-lýsingin er „staðreyndarlýsing“ en hin er gildishlaðin og þar má koma fyrir lykilorðum sem hafa vægi hjá notendum eins og „hlý“ og „sumar“.
1. Smelltu á myndina og svo „Myndastillinga“-íkonið:
2. Ritaðu inn viðeigandi texta í reitina:
Komdu í kaffi til okkar og við förum yfir þín mál og gerum tilboð sem hentar þinni starfssemi.
s. 464 8700