Nýr vefur Blaðamannafélagsins eykur hagræði

05. september 2017
Pétur Rúnar

Birgir GuðmundssonBlaðamannafélag Íslands opnar nú nýjan vef hjá Stefnu, en félagið hefur undanfarnar vikur verið að uppfæra vefsíðu sína og breyta henni nokkuð í leiðinni.  Að sögn Birgis Guðmundssonar, ritstjóra vefsíðunnar er það von BÍ að nýja síðan verði aðgengilegri en sú gamla, en samhliða hefur verið útbúin útgáfa sem hentar fyrir síma og spjaldtölvur. Þess utan sé stjórnendaviðmót Stefnu, Moya-kerfið, sérstaklega notendavænt.

Útlit fært til nútímans

Að sögn Birgis er ýmis konar nýbreytni á nýja vefnum en mesta breytingin sé þó í útliti og hönnun sem nú sé allt umtalsvert myndrænna en áður var. „Á nýja vefnum er að finna mikilvægt atriði fyrir félagsmenn s.s. upplýsingar um kjarasamninga, styrki og orlofshús auk þess sem þar má líka finna gagnabanka sem hægt er að leita í, og er þar m.a. um að ræða hæstaréttardóma sem tengjast fjölmiðlum og svo Blaðamannaminni“, segir Birgir.

Rafrænt félagaskráningarkerfi

Birgir segir það áhugaverða nýjung að stefnt er að því á næstunni að í þessu nýja kerfi verði hægt að vera með rafrænt félagaskráningarkerfi þannig að starfandi blaðamenn geti nú fengið blaðamannaskíteini sitt í símann, vilji þeir það frekar en að vera með hefðbundið skírteini. „Skírteinin verða  með QR kóða sem hægt er að skanna inn og staðfesta hvort viðkomandi er í félaginu eða ekki. Jafnframt mun félagaskrá uppfærast sjálfkrafa á heimasíðunni. Þetta sparar mikla vinnu við útgáfu skírteina og er á allan hátt mun skilvirkara en áður,“ segir Birgir.

Skoða vefinn