Stefna og Gleðipinnar í stafrænt samstarf

18. febrúar 2021
Snorri Kr.
Veitinga- og afþreyingarfyrirtækið Gleðipinnar og Stefna hugbúnaðarhús eru á leið saman í stafrænt ferðalag inn í framtíðina! Félögin hafa samið um að Stefna annist stafræna vegferð og þjónustu við fyrirtæki á vegum Gleðipinna.

Veitinga- og afþreyingarfyrirtækið Gleðipinnar og Stefna hugbúnaðarhús eru á leið saman í stafrænt ferðalag inn í framtíðina! Félögin hafa samið um að Stefna annist stafræna vegferð og þjónustu við fyrirtæki á vegum Gleðipinna.

Um er að ræða viðamikið og metnaðarfullt samstarf sem felur í sér ráðgjöf, hönnun, forritun, hýsingu og innleiðingu á afgreiðslukerfum og vildarkerfi fyrir alla veitingastaði Gleðipinna, að því er fram kemur í frétt frá félögunum.

„Þetta er virkilega spennandi og áhugavert ferðalag sem við erum að leggja í með Stefnu. Eitt af því sem við lögðum til grundvallar þegar við sameinuðumst í Gleðipinnum var að verða framúrskarandi í stafrænum dreifileiðum og afgreiðslulausnum, þar sem áherslan er á sjálfsafgreiðslu og að upplifun notandans verði sem best. Það er stór þáttur í því að auka ánægju viðskiptavina og við treystum engum betur en Stefnu til að fara í þetta ferðalag með okkur,“ er haft eftir Jóhannesi Ásbjörnssyni, einum eiganda og talsmanni Gleðipinna.

Stefna leggur í dag höfuðáherslu á að hámarka ánægju, afköst, sjálfvirkni og arðsemi viðskiptavina sinna. „Við erum virkilega spenntir fyrir samstarfinu við Gleðipinna. Þeir eru með fjölbreytt og spennandi vörumerki, bæði í veitingum og afþreyingu, og því er þetta skemmtileg áskorun fyrir okkar fólk. Starfsmenn Stefnu koma úr öllum áttum hugbúnaðargeirans og frá upphafi höfum við keppt að því að vinna okkur inn traust viðskiptavina með áreiðanleika, þjónustulund og hugvitssömum lausnum“, segir Guðlaugur Arnarsson, viðskiptaþróunarstjóri Stefnu. Fyrirtækið hefur unnið að fjölmörgum sérlausnum fyrir fyrirtæki og stofnanir, veitt ráðgjöf um rekstur upplýsingakerfa og tekið þátt í alþjóðlegum verkefnum.