hekla-solrikt.jpg

HEKLA er þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig i sölu og þjónustu á bílum með það að leiðarljósi að veita úrvals þjónustu og ráðgjöf. HEKLA er umboðsaðili Volkswagen, Audi, Skoda og Mitsubishi á Íslandi, framleiðendur sem þekktir eru um allan heim fyrir gæði og áreiðanleika.

„Við hjá HEKLU erum afar ánægð með nýja vefinn okkar sem hið frábæra starfsfólk hjá Stefnu setti upp fyrir okkur. Vefurinn er einfaldur í notkun, þeim atriðum sem við lögðum áherslu á gerð góð skil, hann lítur mjög vel út og kemur alveg einstaklega vel út í snjallsímum og spjaldtölvum. Við höfum fengið mjög góð viðbrögð og ekki skemmir hve góð þjónustan hefur verið í kringum vefþróunina.“

Halldóra Anna Hagalín
Markaðsfulltrúi

Volkswagen Golf

Bílaumboðið Hekla tók nýlega vefinn sinn Hekla.is og vef notaðra bíla í gegn. Vefhönnun hans var samstarfsverkefni Stefnu og Arnar Smára, sjálfstætt starfandi hönnuðar, en forritarar okkar höfðu umsjón með viðmótsforritun og uppsetningu í Moya vefumsjónarkerfið.

Vefurinn er einnig búinn tengingu við innra kerfi fyrirtækisins fyrir notaða bíla og þannig geta viðskiptavinir skoðað úrval bifreiða til sölu og verið í beinu sambandi við sölumenn vegna fyrirspurna. Upplýsingarnar eru settar fram á smekklegan og aðgengilegan hátt, hvort sem um er að ræða bifreiðaverkstæði eða starfsmannalista.

Skoda Octavia G-Tec

  • hekla.jpg
Líkar þér við það sem þú sérð?
Hafðu samband