shutterstock_713573206.jpg

Vefur Rangárþings eystra miðlar upplýsingum um starfsemi og þjónustu sveitarfélagsins gagnvart íbúum, fyrirtækjum á svæðinu og innlendum sem erlendum gestum. Áhersla í hönnun er að endurspegla gildi sveitarfélagsins og styrkja ásýnd þess, efla stolt íbúa af því og efla þjónustu.

„Árið 2018 fórum við af stað í að endurnýja heimasíðuna okkar. Við ákváðum að ganga til samninga við Stefnu og erum við einstaklega ánægð með þá ákvörðun. Strax frá byrjun hefur starfsfólk Stefnu lagt sig fram við að koma til móts við okkar hugmyndir sem og komið með góðar lausnir varðandi útlit og úrvinnslu.

Vefumsjónarkerfið Moya er þægilegt í notkun og auðvelt að læra á það. Öll þjónusta er til fyrirmyndar og spurningum er svarað fljótt og fagmannlega hvort sem það er í gegnum þjónustuborðið eða tölvupóst.“

Árný Lára Karvelsdóttir
Markaðs- og kynningarfulltrúi Rangárþings eystra

Á vefnum eru fréttir og viðburðir, ritstjóri hefur fullt sjálfstæði til að útbúa eyðublöð og eru fundargerðir sóttar beint úr One Systems. Einnig er öflug leitarvél með síu fyrir mismunandi efnistegundir. Á vef Rangárþings eystra er sérstök áhersla lögð á aðgengismál svo sem flestir íbúar geti nýtt sér vefinn.

  • hvolsvollur-vefskot-forsida.png
  • hvolsvollur-vefskot-skolinn.png
Líkar þér við það sem þú sérð?
Hafðu samband