Nú bókarðu dekkjaskipti og smur á netinu

07. maí 2019
Pétur Rúnar
Langtímaleigan hjá Bílaleigu Akureyrar hefur tekið stórt stökk með bókunum í smur og dekkjaskipti á netinu.

Stærsta bílaleiga landsins, Höldur - Bílaleiga Akureyrar, tók stórt skref inn í nútímann á dögunum þegar þeim fjölmörgu sem eru með bíl í langtímaleigu hjá fyrirtækinu býðst að panta sér tíma í dekkjaskipti og smurþjónustu á netinu.

Tímapantanir skrást beint inn í Navision, svo þessi viðbót vinnur með núverandi kerfum og smellpassar því inn í högunina á verkstæðum Höldurs.

Starfsfólk getur stillt hvenær má bóka tíma, þar sem tímabókanir í dekkjaskipti eru jú mun þéttari en í smurþjónustu. Einnig má stilla upp mismunandi staðsetningu fyrir hverja þjónustu. Tímapantanir eru í boði á þremur stöðum; Skeifunni 9 í Reykjavík, Drangahruni 3 í Hafnarfirði og á þjónustustöðvum á Akureyri. Þegar notandi hefur pantað tíma berst staðfesting í tölvupósti, en einnig er sent SMS til áminningar þegar nær dregur tímanum.

Vantar þig bókunarkerfi inn á netið fyrir þína þjónustu? Hafðu samband og við komum þér inn í nútímann - ímyndaðu þér tímasparnaðinn við símsvörun!

Bókaðu tímana á netinu