Te & Kaffi hafa verið leiðandi á íslenskum kaffimarkaði síðan 1984 og rekur alls níu kaffihús á höfuðborgarsvæðinu og starfa þar um 100 manns. Mikil tækifæri felast í stafrænni umbreytingu og því eru miklar vonir bundnar við þetta samstarf.
Rík áhersla hefur verið á þróun nýrra stafrænna lausna hjá Stefnu undanfarin ár. Ber þar helst að nefna sjálfvirkar afgreiðslulausnir, öflugar vefverslunarlausnir, snertilausar greiðslulausnir, app forritun, ásamt sjálfvirkri gjaldtöku fyrir bílastæði svo eitthvað sé nefnt.
Öll verkefnin eiga það sameiginlegt að nýta til fulls sjálfvirknivæðingu, efla skilvirkni, bæta þjónustu og styrkja þannig ímynd ásamt því að stuðla að aukinni sölu.
Við hjá Stefnu erum virkilega spennt fyrir þessu verkefni og hlökkum til öflugs samstarfs með Te & Kaffi. Okkar markmið er að þróa og innleiða lausnir sem sniðnar eru að þeirra starfsemi og gera um leið fleirum kleift að njóta þeirra framúrskarandi vöru- og þjónustuframboðs.
Komdu í kaffi til okkar og við förum yfir þín mál og gerum tilboð sem hentar þinni starfssemi.
s. 464 8700